HATARI — X

Europe Will Crumble 2020 Tour: HATARI – X Subtitles available in CC. Neysluvara EP LYRICS: X! Ljóðið er dautt listform og vitið uppurið. Orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla, mógúla og svikahrappa. Það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það. – Þú horfðir á mig deyja. Þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi. Gjaldþrot hins andlega mergsýgur framtakið og kæfir það í biturleika. Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna. – Þú horfðir á mig deyja. Óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í óbilandi meðalmennsku meðalmannapans. Lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans. Hann krýpur á hnjánum. Holskeflan er gröf. Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna. Dreyri vellur – hann fellur í valinn. – Þú horfðir á mig deyja.
Back to Top